Færsluflokkur: Bloggar
4.1.2009 | 08:04
Hundur í hættunni í Kína !!!!!!!!!!!!!!! Hundfúl :(
Dóttir hringdi einn daginn fyrir jól,mamma ég er orðin 'ASTFANGINNNNNNNNN!!!!!!!!!!! já og þarf að fá lánaða hjá þér dómgreind 'Eg sá fyrir mér í hyllingum undurfagran tengdason,barnabörn,laust herbegi já vinnuherbgi fyrir mig og............MAMMA ertu þarna!!!!!!!!!????????? Ha já elskan sorry halltu áfram með smjeeerið hver er hinn heppni( EÐA ÞANNIG HE HEM;EKKI ORÐ UM.........) Það er EKKI HANN ÞAÐ er ROSALEGA FLOTTTTTTTTT VESTI frá Cintamani Ennnnnnnn það kostar!!!!!! já hlustaðu mamma,MAMMA!!!!!! GARG!! OK.ég hlusta Já það kostar í kringum tuttugu þúsund en það er æððððði ,ég er alveg veik mig langar svooooooooooooooo mikiðSvar= Það er KREPPA !!!!!!!!!!! jafnaðu þig ,dragdu andan djúpt nokkrum sinnum þú sást aldrei ÞETTA vesti og allt í lagi BLESS grrrrrrrr
Viku seinna kemur dóttir heim 'Eg horfi heilluð á hana eða kanski á VESTIÐ!!!!!!!! sem hún er í hvar fékkstu þetta ????????Ja mamma ég bara varð en ég átti smá pening og já FLOTTUST!!!!
'Eg fékk að máta að sjálsögðu oggggggggg já bara FLOTTUST!!!!!!!!!!!! 'Eg bara VARÐ að eignast svona vesti!!!!!!!!!!!!!!
'Eg yfir morgunkaffinu sýndi eiginmanninum heilsýðu mynd af rauðu vesti ef þig langar handa mér í jólagjöf þá værir þú
Mjúkur pakki á aðfangadagskvöld frá mínum elskulega RAUTT CINTAMANI VESTI Hvílík hamingja og með þessum dásamlega loðkraga sem er í alveg sama lit og jafn dásamlega mjúkur og hún Sigurrós kafloðna Peking hundastelpan mín
Jæja en eins og allir er mig þekkja þá ELSKA ég hunda og á fjórar hundadætur og væri alveg til í fleiri.....önnur saga .....en hvað um það ég var að lesa á mbl í gær grein um dýralækni konu sem henti jólagjöfinni sinni út á hauga því loðkraginn á flíkinni var af lifandi flegnum Marðarhundi frá Kína HV'IL'IKUR VIÐBJ'OÐUR!!!!!! og hvaða merki er á þessum VIÐBJ'OÐI???? nú bara eitthvað Cintamani......kannast ekki við það sem betur fer
En jæja elskurnar ætla að fara út að labba með hundastelpurnar mínar
Að sjálfsögðu í rauða vestinu bara FLOTTUST
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.1.2009 | 23:16
Gleðilegt ár :):):)
Sendum kreppuna til Kína
Og allt verður í fína................
Verum bara í stuði
neð Guði..........
'Aramóta KN'USSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
Bloggar | Breytt 2.1.2009 kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.12.2008 | 03:30
Jólakveðjur:):)
Allt tilbúið á þessum bæ eftir maraþon törn í dag en í morgun var ég nú ekki björt fannst ég eiga allt eftir að gera en setti bara nítroið á eins okkur húsmæðrum er lagið
Hundastelpurnar mínar fjórar búnar að fara í jólabað en það gekk nú á ýmsu en þær eru voða fínar núna Lét nú vera að baða Kisu Björku enda sér hún nú um það sjálf blessunin enda mundi ég ekki þora því fyrir mitt litla líf kattar kvikindið er svo grimm
Mágur minn kom hér í heimsókn með jólapakka ég botnaði ekkert í því hvað hann var HOPPANDI glaður en það var nú ekki af því að sjá mig og hann var ekki glaður hann var hoppandi af því að Rosy hin fræga beit hann hvað eftir annað í lappirnar ég hafði nú lúmngst gaman af enda er hún ekki nema þrjú kíló en heldur að hún sé Shafer 'Eg fékk að heira það að þetta væri eins og hjá Dagfinni dýralækni hér á bæ
Gleðileg jól
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.11.2008 | 14:49
Ekki gaman að vera Helena núna:(
Olla jæja eftir sex vikna dvöl á Reykjalundi stökk ég til Costa del sol já með tveggja daga fyrirvara ekta ég!!!!!!!! Hafði það virkilega næs þarna suðurfrá og meira en það því þegar ég frétti hvernig landinn á klakanum hagaði sér þá framlengdi ég um viku þannig að ég var hátt í fjórar vikur Núúú en þegar heim var komið þá var suðræn sæla FINIDO!!!!!!!! Allt komið í vitleisu já bara búið að stela öllum 'Islands auðnum ,bara allt og allir í KLESSU Ekki meira um það ég er komin með upp í kok af öllu þessu og játa að ég er miður mín En staðan er nú þannig í dag að ég er búin að vera veik nánast látlaust síðan ég kom frá Spáni Hefði bara átt að framlengja FOREVER!!!!!!!!!!!!!!
Bloggar | Breytt 7.12.2008 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.8.2008 | 11:27
Blómstrandi dagar :):)
Jæja loksins nenni ég að blogga en ég er búin að vera á Reykjalundi sl. fimm vikur og á eftir eina sem ég mæti í dagstadus. Er ég kom í Blómabæin í gær mikið þreytt af Lundinum eftir fimm vikna HERÞJ'ALFUN !!!!!! ja mér brá nokkuð því mín megin (HÆLISMEGIN AUÐVITAÐ) er allt skreitt með bláum blöðrum,borðum,fánum já bara öllu bláu sem fólk finnur til að hengja út bæði á tré grinderk bíla og fl. En kambamegin er allt skreitt með rauðu og mikil samkeppni að mér sýnist. Ekki er nú verið að fagna heimkomu minni því miðurNei það er búið að litaskipta Blómabænum!!!!!!!!! En þessa helgi eru Blómstrandi dagar . Það er rok og rigning því miður en alveg tibikal þegar um svona stórviðburð er að ræða En Blómarósin ætlar bara að liggja po langsiden í dag og hafa það gott
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.5.2008 | 05:03
Hristumst og skjálfum :( Blómarósin og Blómabærinn :(:(
Já það aldrei lognmolla í lífi Rósarinnar,flutti hingað í Blómabæinn til þess að njóta þess að vera í rólegheitum og frið Ennnnn það hefur nú ekki alveg gengið,held að hvar sem við erum þá gengur lífið bara þannig að við sleppum aldrei frá því áfallalaust.
Þann 29 ákvað Rósin að fara í sund en hún var lurkum lamin frá því daginn áður eftir að hafa bónað tvo bíla hér á bæ en það er tekin þriggja tíma skorpa að jafnaði á bíl enda er allt og verður að vera FULLKOMIÐ!!!!!!!! sem hún gerir Jæja en vanalega á fimmtudögum extrar hún húsið ennnnn það var glampandi sól og þá er bara ekki inni í myndinni að vera innanhúss BANNAÐ
Hundastelpurnar fjórar voru settar út í bíl eftir smá umhugsun því hætta á að þeim yrði of heitt . Rósin sólaði sig í heitu pottunum í dágóðan tíma en skellti sér síðan í skylduna semsagt 500 metrana ALDREI minna Nú er hún er að fleyta sér í mestu makindum þá fer nú allt í einu að koma hálf einkennileg tilfynning ,vatnið í lauginni fór að hækka og HÆKKA!!!!!!!!!!en svo að lækka og Lækka!!!???????? voru sumir að verða vitlausir!!!!???bara sogaðist nyður og hvílík læti það kom foss á eftir en vatns fjall við hliðina en fljótandi ofan á því gargandi unglings Blómarósir er voru fljótar að forða sér ... Rósin var ekki búin nema með 250 metra þannig að hún ákvað að klára sitt á hverju sem gengi og HANA N'UVar nú doldið hissa á látunum þarna uppi á bakkanum allir á hlaupum ?? er 400 metrar voru að baki kemur sundlaugavörðurinn og segist nú vera hálfhræddur um Rósina því laugin gæti KLOFNAÐ og hvað þá . Jæja sumir urðu að gefa sig þó 100 metrum væru ólokið En hvað um það að er uppúr var komið þá gerðii mínsér grein að eitthvað mikið var að ske,konur hlaupandi með fötin í fanginu(stöku jurehaldarar og g strengir höfðu orðið viðskila í fátinu) En Rósin og önnur eldri Blómarós fóru nú í sýna innisturtu báru á sig brúnkukrem og settu upp andlitið ,jú maður verður nú alltaf að halda andlitinu sama á hverju gengur En engin var friðurinn því sturtumamma kom og sagði að allt væri í rúst uppi og að sonur minn væri mættur því heimilið mitt væri líka á rúst.
ER heim var komið blasti ekki við fögur sjón það var eins og fellibylur hefði farið um allt hús og ekki slapp bílskúrinn
EN það fyrsta sem Rósin gerði sem sannur áhugaljósmyndari var að grafa myndavélina upp úr draslinu og mynda allt en hvílíkir eftirskjálftar Púff.
Nú eru sumir búnir að vaka í sólarhring við að ganga frá og punkta nyður allt tjón sem er ekki lítið og nú auðvitað koma myndirnar sér vel fyrir tryggingarnar þó þær hefðu nú ekki verið teknar í fyrstu fyrir þær.
En forlögin geta verið skrítin því Rósin átti að fara inn á Reykjalund þennan dag en það var hringt og því frestað til tíunda júlí.Ef litlu hundastelpurnar mínar eða aðrir hefðu verið inni í húsinu þennan dag veit mín ekki hvernig hefði farið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2008 | 03:51
Startkaplana á Blómarósina!!!!!! Engin miskunn!!!!!!!!!!
Já nú fer að styttast í Reykjalundinn :)Sú gamla hefur nú verið þar áður og kunnað vel við sig,enda mikið fyrir útivist og sund .Mín var að fara í pósthúsið hér í Blómabænum en það er staðsett í Sunnumörk nýlegri verslunarmiðstöð hér í bæ,en það sem Blómarósin ættlar að tala um er að stundum má nú ofgera í glæsileikanum,þó að sumir séu nú EKKI að tala um sjálfa sig he,hem.....JÆJA en þetta var á fögrum rigningar degi og sumir ekki á hælunum aldrei þessu vant , bara á strigaskóm en með veskið mitt og vel til höfð að vanda:):)
Er ég kem inn í Sunnumörkina eins og hundur af sundi ,farið að slá aðeins á glæsileikan :( jæja en það sló ekkert á glæsilegar gólfflísarnar!!!::GRRR .En sumir tókust á loft í bleytunni er hafði borist inn,sáu loftljósin ,ekki af verri gerðinni, og veski mjög kunnulegt,nokkur umslög og KRAZZZ!!!!! nú var ekki mikill glæsileiki á Blómarósinni:( lyggjandi eins og kónguló á bakinu að átta sig á hað i verden hafi skeð???? En eins og sannri konu sæmir þá þarf hún ávallt að vera viðbúin!!!! þannig að mín var snögg á fætur ,kanski aðeins of því nú var dansað eins og belja á svelli og farið aftur í kóngulóar stellinguna:( en fyrir rest hafðist þetta nú á fjórum fótum,ungur herramaður horfði gáttaður á og bauð fram hjálp og spurði hvort Rósin væri slösuð??? Með tómat rauðar(allt tómat rautt hér í bæ enda okkar ræktunar litur ásamt gúrku grænu )kinnar af skömm og reiði neitaði mín því.Komst nú fyrir rest í pósthúsið með mitt nýja argintætu útlit,afgreiðslu stúlkan var eins og ópið,er í lagi með þig????það eru bara allir dettandi hér í dag,held að nýi húsvörðurinn er byrjaði í morgun hafi gert eitthver mistök með gólfsápuna sett of mikla en annars eru þessar flísar STORHÆTTULEGAR!!!þegar þær blotna.
Lá eins og hertur hundur á parkodin forte í viku:( en í september eru tvö ár frá þessum fimleikum.Eftir miklar rannsóknir þá eru bæði mjöðm og hné sködduð :(
Glæsilegu flísarnar skarta enþá en nokkrir Hvergerðingar hökta, hvað um það ,verður ekki allt að skarta fyrir augað í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2008 | 04:52
Minning um kæran vin.
Þann 26 Marz dó besti vinur minn,hann hafði átt við veikindi að stríða í þó nokkurn tíma en talaði lítið um það,hann vann fram á hinsta dag ,hann stóð meðan stætt var.'Eg hitti hann kvöldið fyrir andlátið en þá var hann að fara að vinna en hann hafði verið næturvörður í Hveragerði í mörg ár.
Það er svo sárt þegar náin vinur eða ættingi kveður ,við viljum bara hafa allt eins og það var en við verðum víst að sætta okkur að þetta er lífsins gangur og blessa minningu hins látna.
'Ulfar vinur minn átti þrjá litla hunda sem honum þótti mikið vænt umFyrir mörgum árum er hann átti bara hana Rosy sína (en hún er svolítið strokugjörn) þá skeður það á köldum Sunnudags morgni að 'Ulfar er að fá sér morgun kaffið sitt að venju,hann var nú bara í náttfötunum sem voru ekki efnismikil Hann þurfti að henda út ruslapoka,opnar smá rifu á útidyrnar til að smegja pokanum út , ætlaði sér að henda honum í tunnuna seinna um daginn.Rosy var nú snögg að sjá þessa smugu og þaut út og 'Ulfar á eftir en ekki gafst tími til að fara í spjarirnar Rosy hleypur hratt þó lítil sé,en það gerðu nú sumir líka og var hlaupið í gegnum garða,fram hjá eldhúsgluggum stokkið yfir girðingar og veinað hástöfum Rosy,Rosy,engin sá Rosy í öllum látunum en fólk hugsaði sitt hvað voru sumir að hlaupa úti hálfnaktir á Sunnudagsmorgni í vitlausu veðri ???og hver var þessi ROSY????!!! Rosy náðist en mikið hlógum við að þessu lengi á eftir, því nú kæmist sú saga af stað að kallinn orðin endanlega vitlaus hlaupandi á eftir draumadísinni sem hann einn sá.
'Eg skrifa þessa spaugilegu sögu til þess að minna mig á hvað þessi kæri vinur skilur eftir sig skemmtilegar minningar,ég er svo þakklát að hafa átt hann sem vin
En hvar haldið þið að Rosy sé???? Nú auðvitað hjá mér. en tvítugur sonur minn hljóp mjög fáklæddur hér í Hveragerði fyrir stuttu kallandi Rosy,Rosy.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.4.2008 | 02:51
Klædd og komin á ról:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)